Viðskiptaskilmálar

Þessir skilmálar gilda um viðskipti í vefverslun Blómatorgs (Hringbraut 33, 101 Reykjavík, Ísland). Með því að versla hjá okkur samþykkir þú eftirfarandi skilmála.

1. Fyrirtækið

Blómatorgið er rekið af:

Blómatorgið (kt: 530208-1410, VSK nr: 97241)
Hringbraut 33
101 Reykjavík
Ísland
Sími: 766 7666
Netfang: dagur8@gmail.com

Verslunin er eingöngu rekin á netinu og við bjóðum upp á afhendingu í verslun.

2. Lög og varnarþing

Viðskiptin lúta íslenskum lögum.
Rísi ágreiningur skal hann borinn undir Héraðsdóm Reykjavíkur, nema lög mæli fyrir um annað.

3. Verð og greiðslur

Öll verð í vefverslun eru sýnd með virðisaukaskatti þar sem við á.

Við áskilum okkur rétt til þessa að hætta við sölu án fyrirvara, breyta vöruframboði án fyrirvara og breyta verði án fyrirvara.

Greiðslur fara fram í gegnum örugga greiðslumiðlun.
Við tökum við helstu greiðslumátum samkvæmt því sem birt er við pöntun á greiðslusíðu.

4. Endurgreiðslur vegna galla

Við endurgreiðum eftir að við höfum móttekið og skoðað vöruna.

Ef vara er gölluð, berum við allan kostnað og bjóðum:

  • skipti í nýja vöru, eða
  • fulla endurgreiðslu

5. Afhendingarskilmálar

5.1 Afhendingarmáti

Við bjóðum eingöngu upp á afhendingu í verslun.

Engin heimsending er í boði að svo stöddu nema að pantað sé með Wolt.

5.2 Afhendingartími

Þú færð tilkynningu þegar varan er tilbúin til afhendingar.

Pantanir sem berast utan opnunartíma eru afgreiddar næsta opnunardag.

5.3 Afhendingarstaður

Vörur eru afhentar í verslun okkar á:

Blómatorgið, Hringbraut 33, 101 Reykjavík

5.4 Sendingarkostnaður

Enginn sendingarkostnaður er innheimtur þar sem aðeins er boðið upp á afhendingu í verslun.

6. Persónuvernd

Við vinnum persónuupplýsingar í samræmi við:

  • lög nr. 90/2018 um persónuvernd
  • GDPR
  • persónuverndarstefnu Blómatorgs

Við deilum aldrei upplýsingum með þriðja aðila nema þegar nauðsynlegt er til að vinna úr pöntunum (t.d. Shopify og greiðslumiðlun).

7. Hafa samband

Ef þú hefur spurningar um skilmála eða þjónustu okkar, endilega hafið samband:

Blómatorgið
Hringbraut 33, 101 Reykjavík
Sími: 766 7666
Netfang: dagur8@gmail.com